Sveitarstjórnin hefur nú lagt fram ný drög að aðalskipulagi og jafnframt drög að umhverfisskýrslu sem VSÓ hefur unnið. Allt er við það sama og áður, en umhverfisráðherra neitaði á síðasta ári að staðfesta þann hluta skipulagsins sem felur í sér að vegstæði þjóðvegar 1 fari meðfram ströndinni.
Það kemur á óvart og veldur miklum vonbrigðum að sveitarstjórnin í Mýrdalshreppi skuli ekki hafa breytt afstöðu sinni til hvar heppilegast sé að staðsetja þjóðvegar 1. Sveitastjórninn vill sjá veginn meðfram stöndinn og telur sig hafa haldbær rök fyrir þeirri afstöð. Svo að segja allir fagaðilar sem hafa tjáð sig um þetta mál, hafa med góðum rökum bent á að flutningur á vegastæðinu að ströndinni er ónauðsynlegur þar sem bæta má samgöngur með einfaldari framkvæmd. Jafnframt hefur komið fram að vegastæði með ströndinni mun valda mikilum skaða á bæði ásýnd og náttúrufari í Mýrdal.
Áhugafólk um náttúruvernd í byggðinni fékk Environice til að fara yfir drög in að umhverfisskýrslu um aðalskipulagið. Það var heppilegt. Sú yfirferð sýnir að umhverfisskýrslan veitir ekki trúverðuga mynd af væntanlegum afleiðingum vegagerðar meðfram ströndinni. Það er nú ekki í fyrsta sinn sem maður sér þess háttar vinnubrögð hjá VSÓ.
Mýrdalur er afar fögur sveit og ströndin einstök. Það er til mikils að vinna að þessum verðmæta náttúruarfi verði ekki spillt. Umrætt aðalskipulag getur skipað náttúruvernd í öndvegi í Mýrdalshreppi eða leyst úr læðingi mikila eyðileggingu með því að festa vegastæði meðfram ströndinni í sessi. Það síðarnefnda væri mikið ógæfuspor.