Huang Nubo fékk ekki að kaupa Grímstaði á Fjöllum. Það gremur marga sem telja Ísland hafa með því orðið af ljóðelskandi viðskiptamanni sem ber hlýhug til Íslands, og sem hefði getað lagt gott til íslensk samfélags með fjárfestingum. Áhyggjur þeirra sem telja að erlendar fjárfestingar séu eina leiðin til að hleypa lífi í íslenskt efnahagslíf eru einning skiljanlegar. Það má þó minna þá á að hagvöxtur á Íslandi þessi misserin er meiri víðast hvar í Evrópu.
Það ekki óhugsandi að ákvörðun innanríkisráðherra komi í veg fyrir áhugavert viðskiptaævintýri sem hefði getað orðið okkar þjóð til blessunar. En ekki er á vísan að róa með það. Reynslan sýnir að það er óralöng leið frá landakaupum útlendinga til þess að þeir ýti úr vör fjárfestingum sem bæta hagsæld Íslendinga. Einnig vita allir að kaupin á Grímstöðum eru í sjálfum sér ekki forsenda þess að umræddur viðskipajöfur geti stofnað ferðaþjónustu á Íslandi. Í raun vekur það undrun mína að Nubo skuli byrja á þessum enda málsins, umdeildum jarðakaupum. Nubo hefði verið mun trúverðugri ef hann hefði hafið uppbyggingu á sínum glæstu ferðaþjónusutáformum án þess að gera tilraun til að eignast 300 ferkílómetra af Íslandi fyrst.
Ég hef ekkert á móti því að fólk að öðru þjóðerni komi sér fyrir á Íslandi og stundir þar viðskipti, að því gefnu að farið sé að þeim reglum og lögum sem setta hafa verið. Hugsanlega eru kínverskir fjárfestar vandaðri viðskiptamenn en þeir íslensku, en reynslan af þeim síðarnefndu hefur því miður ekki verið svo góð undanfarin áratug eða svo. En þegar ég velti þessu máli fyrir mér þá kemst ég ekki hjá því að leiðan hugann að þeirri staðreynd að kínverskir viðskiptajöfrar hafi orðið auðugir í skjóli kínveska kommunistaflokksins og viðhalda sínu ríkidæmi með að rækta skyldu sína við hann. Þá hefur oft komið fram í fréttum undanfarin ár að Kína leitar aðgangs að landi og auðlindum í fjölmörgum ríkjum og notar ríkidæmi sitt til landakaupa víða um heim. Svo virðist sem það sé opinber stefnan Kína að eignast land í útlöndum. Ekki er hægt að útiloka að áform Nubo tengist þessari viðleitni kínveskra stjórnvalda í jafn miklu mæli og hlýhug hans til Íslands og íslenskrar náttúru.
Ég viðurkenni að ég þekki ekki allar hliðar þessa máls. Út frá því sem ég hef kynnt mér er ég sammála þeirri niðurstöðu sem innanríkisráðherra komast að. Ef Nubo raunverulega óskar eftir því að stofna ferðaþjónustu á Íslandi þá hvet ég hann til að hefjast þegar handa, og leigja til þess land og aðstöðum sem til þarf. Með því sýnir hann raunverulega hvað hann hefur í huga.