Hún fæddist á rigningadegi í Vík í Mýrdal, síðla júlí árið 1920. Hún dó í síðustu viku á Landspítalanum eftir stutta legu. Þá skein sólin glatt. Það var dæmigert fyrir hennar líf, að færa ljós og birtu inn i líf annarra. Hún var ljósberi alla ævi. Hin síðari ár var hún á sífeldum þönum að [...]
Archive for the ‘Minningargrein’ Category
Stúlkan frá Vík sem varð mamma mín
Posted in Minningargrein, tagged Guðný Sveinsdóttir, hjúkrunarkona, Minning on maí 10, 2012 | 2 ummæli »
Ruth Tryggvason – minningarorð
Posted in Minningargrein, tagged Ruth Tryggvason on mars 27, 2011 | Leave a Comment »
Ung kona þurfti bæði kjark og dágóðan skammt af bjartsýni að flytja frá kóngsins Kaupmannahöfn til einangraðs samfélags á Vestfjörðum rétt fyrir miðja síðustu öld. Hvað gerir kona ekki fyrir og vegna ástarinnar. Fyrir liðlega 60 árum fann Aðalbjörn föðurbróðir minn ástina sína í Kaupmannahöfn þar sem hann var við nám. Það var Ruth. Hún varð [...]
Við Bob Marley
Posted in Minningargrein, tagged Bob Marley, Hope Road 56 on mars 16, 2011 | Leave a Comment »
Í gærkvöldi rakst á grein á pressan.is um Bob Marley. Grein byggir á viðtali við kappann í húsi hans við Hope Road 56 i Kintston á Jamaica árið 1980. Þar leit ég við á langri ferð um Ameríku. Ég var svo heppinn að Marley var heima. Þar á veröndunni sátum við Sigrún langa stund og reyndum að koma á [...]
Steingrímur Hermannsson var máttarstólpi Landverndar
Posted in Minningargrein, tagged Steingrímur Hermannsson on febrúar 7, 2010 | Leave a Comment »
Ég vil minnast Steingríms Hermannssonar sem féll frá í síðustu viku. Hér á myndinni til hægri er Steingrímur á góðri stundi á stjórnarfundi Landverndar ásamt Ólöfu Guðnýju formanni Landverndar og Þórði á Akri stjórnarmanni Landverndar. Það var hvalreki fyrir Landvernd þegar Steingrímur Hermannsson lagði til að Umhverfisverndarsamtök Íslands, sem hann hafði tekið þátt í að stofna fáeinum [...]