Feeds:
Færslur
Athugasemdir

Archive for the ‘Gróðureyðing’ Category

Eftirfarandi grein birtist í Bændablaðinu í lok júní 2019:

Um fjórðungur styrkja ríkisins til sauðfjárbænda er háður því að þeir geti sýnt fram að um sjálfbæra landnýtingu sé að ræða. Ef svo er ekki verða þeirra að leggja fram marktæka landbótaáætlun sér til halds. Fram til þess hefur enginn bóndi á Íslandi fallið á þessu prófi. Gott ef satt væri! En svo virðist því miður ekki vera tilfellið.

Nýlega skýrsla Ólafs Arnalds prófessor um styrkveitingar til sauðfjárræktar felur í sér æði óskemmtilega lýsingu á stjórnsýsluklúðri og misnotkun á opinberu fé.

Svo virðist sem Landgræðslan hafi verið þvinguð til að staðfesta að landnotkun og landbótáætlanir væru í samræmi við gildandi viðmið og reglur  um sjálfbæra landnýtingu svo greiða mætti út styrki til bænda sem ekki standast nein eðlileg viðmið. Skýrslan byggir á haldgóðum upplýsingum með ítarlegum rökstuðningi, svo það er rík ástæða til að taka hana mjög alvarlega.

Það sem kemur fram í skýrslunni er harður dómur um stjórnsýslu á þessu sviði, vægast sagt. Innan við fimmtungur sauðfjárbænda er ábyrgur fyrir eyðileggjandi landnýtingu en niðurstaða skýrslunnar eru engu að síður svartur blettur á sauðfjárrækt almennt. Skýrsla Ólafs sýnir sem betur fer að mikill meirihluta bænda uppfyllir öll skilyrði fyrir sjálfbæri landnýtingu og eiga þar með full rétt að þeim styrkjum sem því fylgja.

Málið virðist svo alvarlegt að eðlilegt væri að Alþingi fæli Ríkisendurskoðun að fara í saumana á framkvæmdinni. Ýmislegt bendir til þess að milljarðar króna hafa farið úr ríkissjóði til bænda sem hafa ekki átt rétt á slíkum greiðslum. Best færi að sjálfsögðu á því að Bændasamtökin sjálf tækju þátt í því að upplýsa þetta mál af fullu.

Eyðing gróðurs og jarðvegs er enn ein helsta umhverfisplága Íslands. Að opinberu fé sé veitt til búskapar sem viðheldur þessu vandamáli er reginhneyksli. Að framkvæmd vottunar á landnýtingu sé gerð með því að þvinga fagstofnun ríkisins á þessu sviði til að samþykktar er misnotkun á valdi. Að greiða fé og ríkissjóði til þeirra sem ekki eiga rétt á þeim kann að vera refsivert.  Er ekki kominn tími til að stjórnsýsla landsins vakni upp af dvalanum og taki til hendinni?

Read Full Post »